Fjallabjálki - Eyrnalokkar - Silfur
28,000 kr
Línan Fjallabjálki er innblásin af tignarlegum fjallstindum Þórsmerkur, eitt stórbrotnasta náttúrusvæðis Íslands. Fyrir mér er Þórsmörk töfrastaður og mitt annað heimili, staður sem hefur fylgt mér frá fyrstu tíð og verið endalaus uppspretta innblásturs.
Frá minni fyrstu ferð aðeins tveggja mánaða gömul hef ég snúið þangað aftur og aftur, á hverri Jónsmessu með fjölskyldu minni. Hrjúfir fjallshryggirnir, miðnætursólin og mosa grænu hlíðarnar, skapa landslag sem er bæði kraftmikið og töfrandi.
Línan er tileinkuð Þórsmörk. Með þessari línu leitast ég við að fanga form fjallanna og umbreyta villtri fegurð hennar í tímalausa, handsmíðaða skartgripi sem bera með sér brot af stað sem hefur mótað mig.
Hver gripur er vandlega handsmíðaður úr silfri og 14 karata gulli.
28,000 kr
30,000 kr
38,000 kr
17,500 kr