Þar sem íslensk náttúra mætir töfraheimi fantasíunnar.

Frá glitrandi hæstu tindum til dimmustu djúpa, þar sem öll möguleg efni fá að njóta sín.

Handgerðið skartgripir úr silfri og 14k gulli

Frá 14 karata gulli til silfurs, hér finnur þú eitthvað við þitt hæfi.

Handgert af mér

Hvert einasta stykki er vandlega handgert af mér í litla garðskúrnum mínum.

Gott að vita áður en þú pantar ♡

Þar sem allt er handgert af mér og litla fyrirtækið mitt er rétt að stíga sín fyrstu skref, gef ég mér eins og er allt að 3 vikur til að útbúa pöntunina þína og gera hana tilbúna til sendingar.

Ég er aðeins með lítið magn af vörum á lager, svo flestir hlutir eru gerðir sérstaklega fyrir þig eftir að pöntun hefur verið lögð inn. Handgerðir skartgripir taka aðeins lengri tíma og ég kann innilega að meta þolinmæðina.

Vinsamlegast hafðu þennan tíma í huga þegar þú leggur inn pöntun, sérstaklega ef þú ert að panta fyrir sérstakt tilefni.

Ef þig vantar pöntunina fyrr er þér ávalt velkomið að hafa samband við mig áður en þú pantar til að athuga hvort ég eigi gripinn til á lager. ♡

Takk innilega fyrir að styðja við handgerða og hæga tísku (slow fashion), það skiptir mig miklu. ♡

Gullsmiðurinn & hönnuðurinn

Stutt um mig

Stutt um mig

Hæ, ég heiti Gréta Ósk og er hendurnar og hjartað á bak við þetta litla skartgripa fyrirtæki. Hvert einasta stykki er handgert af mér, með innblástur frá íslenskri náttúru, fantasíu með ögn af töfrum.

Skartgripirnir mínir eru smíðaðir af alúð, þar sem hver gripur er lítill fjársjóður með sína eigin sögu

Hringar

Hálsmen

Allt er handgert af mér, Grétu Ósk

Ég smíða allt í litla, huggulega garðskúrnum mínum hér í mosó. Innblásturinn sæki ég í íslenska náttúru og heillandi töfraheima fantasíunnar. Hvert einasta verk er skapað af alúð og ímyndunarafli, með ögn af töfrum.

Skoða eftir vörulínum

Vetrarbrautin

Vetrarbrautin

10 atriði

Vetrarbrautar línan er innblásin af endalausri fegurð næturhiminsins og þeirri undrun sem hann hefur vakið hjá mannfólkinu í gegnum aldirnar...

Móri

Móri

1 atriði

Þessi skartgripalína á upphaf sitt í litlum minjagrip, fyrstu hvolpatönn hundsins míns. Í stað þess að geyma hana í kassa...

The Seafarer

Sæfarinn

12 atriði

Línan Sæfarinn er innblásin af undrum hafsins. Hugmyndin að línunni kviknaði þegar ég hannaði afmælisgjöf handa systur minni, en uppáhaldsdýrið...

Skoða eftir vörulínum

Rýtingarnir þrír

Rýtingarnir þrír

4 atriði

Línan Rýtingarnir þrír varð til úr ást minni á fantasíubókum. Í hverri góðri fantasíusögu er goðsagnakennt sverð eða rýtingur með...

Icelandic Filigree

Víravirki

4 atriði

Víravirki hefur alltaf verið stór partur af mínu lífi. Í fjölskyldunni minni er íslenski þjóðbúningurinn mikilvæg hefð og ég, ásamt...

The cordillera

Fjallabjálki

4 atriði

Línan Fjallabjálki er innblásin af tignarlegum fjallstindum Þórsmerkur, eitt stórbrotnasta náttúrusvæðis Íslands. Fyrir mér er Þórsmörk töfrastaður og mitt annað...

''Víravirki hefur alltaf verið stór partur af mínu lífi. Í fjölskyldunni minni er íslenski þjóðbúningurinn mikilvæg hefð og ég, ásamt flestum frænkum mínum, eigum okkar eigin búning.''

Hver gripur er vandlega handsmíðaður úr silfri og 14 karata gulli.

Langar þig í sérsmíðaðan grip?

Langar þig í sérsmíðaðan grip?

Hvort sem þú hefur skýra sýn eða ert rétt að byrja að móta hugmynd, þá langar mig að hjálpa þér að láta hana verða að veruleika. Ég býð upp á sérhannaða hönnun og sérsmíðaða skartgripi og vinn náið með hverjum viðskiptavini að því að skapa hlut sem er persónulegur og gerður til að endast.