Sæfarinn

Línan Sæfarinn er innblásin af undrum hafsins. Hugmyndin að línunni kviknaði þegar ég hannaði afmælisgjöf handa systur minni, en uppáhaldsdýrið hennar er sæhestur.

 Þessar einstöku skepnur búa yfir nærri því töfrandi yfirbragði og líta oft út eins og þær hafi stigið beint út úr ævintýri. 

Í þessari línu leitast ég til að fanga þessi sérstöku form og færa þau yfir í hönnunina. Þannig verða náttúrulegar línur, áferð og endurtekið mynstur sæhestsins grunnur að formmáli línunnar. Mynstur sem öðlast nýtt líf í einstökum, handgerðum og tímalausum skartgripum.

Hver gripur er vandlega handsmíðaður úr silfri og 14 karata gulli.