Vetrarbrautin - Hringur - Silfur
Vetrarbrautarlínan er innblásin af endalausri fegurð næturhiminsins og þeirri undrun sem hann hefur vakið hjá mannfólkinu í gegnum aldirnar. Þegar horft er upp til stjarnanna er auðvelt að ímynda sér heima handan okkar eigin – staði þar sem töfrar lifa, sögur verða til og hvert stjörnumerki hefur sína eigin frásögn.
Innblásin af bæði Vetrarbrautinni og þeim fantasíuheimum sem hafa alltaf heillað mig fagnar þessi lína dulúð, ímyndunarafli og hinu óþekkta. Glitrandi gimsteinar endurspegla fjarlægar stjörnur á meðan flæðandi form vísa til hreyfingar vetrarbrauta á næturhimninum.
Hver gripur er hannaður sem lítið brot úr alheiminum – áminning um að fegurð má finna í hinu ósýnilega og að smá töfrar leynast alltaf í kringum okkur, ef við gefum okkur tíma til að leita þeirra.
Hver og einn hlutur er handgerður af mér, þannig að vinnslutími getur verið frá 2 dögum upp í þrjár vikur. Ef þú ert í tímapressu, vinsamlegast hafðu samband við mig til að athuga hvort varan sé til á lager.
Efni: Sterling silfur
Fyrir oxiteraða skartgripi, vinsamlegast athugaðu að oxiteringin mun dofna með tímanum og mest af ysta yfirborði skartgripsins. Þetta gefur skartgripunum meira fornt útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að fá skartgripina endur-oxiteraða.