Víravirki - Myllur

130,000 kr
| /

Til á lager

Víravirki hefur alltaf verið stór partur af mínu lífi. Í fjölskyldunni minni er íslenski þjóðbúningurinn mikilvæg hefð og ég, ásamt flestum frænkum mínum, eigum okkar eigin búning.

Það var víravirki sem vakti fyrst áhuga minn á gullsmíði. Ég heillaðist af tímalausri fegurð þess, einstakri handverkskunnáttu og því hvernig hægt er að flétta þessari aldagömlu tækni inn í nútímalega skartgripi án þess að glata arfleifð hennar.

Mér hefur alltaf fundist víravirki líta út eins og það hafi verið skapað af álfum. Því lengur sem maður horfir, því fleiri smáatriði koma í ljós og hvert þeirra bætir við einstaka fegurð verksins. Það er eitthvað töfrandi við fíngerðu formin og flæðandi munstrið. Þessi undrun og aðdáun heldur áfram að veita mér innblástur í hverju verki sem ég skapa, þar sem aldagömul handverkshefð mætir nútímalegri hönnun.

Hver gripur er handgerður af mér og því er afgreiðslutíminn um það bil 3 mánuðir. Ef þú þarft verkið fyrir ákveðinn tíma skaltu endilega hafa samband, þá getum við skoðað hvort hægt sé að flýta afgreiðslu.

Þar sem hver gripur er handgerður er hægt að ræða útfærslu og aðlaga hönnunina að þínum óskum. Verðið getur breyst eftir hönnun. 

Efni: Sterling silfur