Móri - Hálsmen - Silfur

9,500 kr
| /

Til á lager

Til á lager

Þessi skartgripalína á upphaf sitt í litlum minjagrip, fyrstu hvolpatönn hundsins míns. Í stað þess að geyma hana í kassa eða henda henni, langaði mig að breyta henni í skartgrip sem ég gæti borið á hverjum degi og ávallt haft nálægt hjartanu.

Ég býð einnig uppá sérsmíðaða skartgripi úr hvolpatönn hvolpsins þíns. Hvort sem um er að ræða hálsmen, hring eða aðra hönnun. Hvert verk handsmíðað af alúð til að varðveita minningu sem þú getur notið um ókomin ár.

Hver og einn hlutur er handgerður af mér, þannig að vinnslutími getur verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef þú ert í tímapressu, vinsamlegast hafðu samband við mig til að athuga hvort varan sé til á lager.

Lengd keðju: 42cm-50cm

Efni: Sterling silfur

Fyrir oxiteraða skartgripi, vinsamlegast athugaðu að oxiteringin mun dofna með tímanum og mest af ysta yfirborði skartgripsins. Þetta gefur skartgripunum meira fornt útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að fá skartgripina endur-oxiteraða.