Rýtingarnir þrír- Rún hálsmen - Silfur

16,500 kr
| /

Til á lager

Til á lager

Línan Rýtingarnir þrír varð til úr ást minni á fantasíubókum. Í hverri góðri fantasíusögu er goðsagnakennt sverð eða rýtingur með eigið nafn og sína eigin sögu. 

Rýtingar hafa þó ekki aðeins lifað í heimi skáldskaparins, í gegnum tíðina hafa þeir einnig verið gerðir sem tákn um stöðu, handverk og persónulega tjáningu. 

Innblásin af ríkri sögu þeirra og töfraheimum fantasíunnar ákvað ég að skapa mína eigin rýtinga, endurhannaða sem sígilda skartgripi sem fanga styrk þeirra, fegurð og dulúð.

Hver og einn hlutur er handgerður af mér, þannig að vinnslutími getur verið frá 2 dögum upp í þrjár vikur. Ef þú ert í tímapressu, vinsamlegast hafðu samband við mig til að athuga hvort varan sé til á lager.

Lengd keðju: 42cm-50cm

Efni: Sterling silfur

Steinn: Moissanite

Fyrir oxiteraða skartgripi, vinsamlegast athugaðu að oxiteringin mun dofna með tímanum og mest af ysta yfirborði skartgripsins. Þetta gefur skartgripunum meira fornt útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að fá skartgripina endur-oxiteraða.