Sæfarinn - Hringur með steinum - Silfur
Línan Sæfarinn er innblásin af undrum hafsins. Hugmyndin að línunni kviknaði þegar ég hannaði afmælisgjöf handa systur minni, en uppáhaldsdýrið hennar er sæhestur.
Þessar einstöku skepnur búa yfir nærri því töfrandi yfirbragði og líta oft út eins og þær hafi stigið beint út úr ævintýri.
Með henni leitast ég til að fanga þessi sérstöku form og færa þau yfir í hönnunina. Úr þessum innblæstri verða náttúrulegar línur, áferð og endurtekið mynstur sæhestsins grunnur að formmáli línunnar. Mynstur sem öðlast nýtt líf í einstaka, handgerða og tímalausa skartgripi.
Hver og einn hlutur er handgerður af mér, þannig að vinnslutími getur verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef þú ert í tímapressu, vinsamlegast hafðu samband við mig til að athuga hvort varan sé til á lager.
Efni: Sterling silfur
Steinn: Moissanite
Fyrir oxiteraða skartgripi, vinsamlegast athugaðu að oxiteringin mun dofna með tímanum og mest af ysta yfirborði skartgripsins. Þetta gefur skartgripunum meira fornt útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að fá skartgripina endur-oxiteraða.